léttfimmtug

þriðjudagur, maí 10, 2005

471-479 / Úff

Óóó!!! Þetta er nú meira puðið að vera í fullri vinnu og skóla, sérstaklega núna þegar próf herja á. Var ekki par glöð í íslenskuprófi í gær! Fóstbræður og setningafræði. Það voru óteljandi göt í hausnum á mér og var ég frekar pirruð, á upp 2 poka af Extra gúmmíi og er maginn í samræmi við það í dag - loft og prump, sem ekki sæmir dömu á mínum aldri. Síðasta próf vetrar í kvöld og hausinn líka tómur þar!!! Ég er ekki alveg að fúnkera í því að stafla uppl. í kollinn á mér, ég verð að hafa rök fyrir því sem ég er að lesa - eða á ég kannski að viðurkenna að ég er haldin frestunaráráttu og les ekki nema rétt fyrir prófið og þá lekur ýmislegt í burtu -!!

En þrátt fyrir allt vigta ég og mæli og held mig enn á minni línu hvað varðar matinn - ég borða ekki út af álagi, ég borða ekki af því mér leiðist, ég borða ekki af því ég er stressuð, ég borða ekki af því aðrir vilja að ég borði með þeim, nema ég borða það sem er gott fyrir mig.

Þó svo að prófin verði ekki fullkomin, þá mun ég gleðjast yfir þeirri getu að vinna rúma átta tíma á dag og vera í fullu kvöldnámi og ná 7.5 í heildareinkunn með lágmarksheimanámi.

Ég mun ekki æðrast yfir slitinu á maganum á mér eða því að lærin á mér eru ekki stinn eins og á óspjallaðri fjórtán ára mey. Ég mun horfa í gaupnir mér og láta hugann reika til baka og muna lífsgöngu mína og gleðjast yfir þeim sálarþroska sem ég hef öðlast. Ég gleðst líka yfir þeirri gjöf sem ég gef mér, sem er lausn frá ofáti og neikvæðri sjálfsímynd. Ég horfi í línurnar á andliti mínu og sé sögu sjálfrar mín og finn hvað ég er sátt við lífið, tilveruna og sjálfa mig.

1 Comments:

  • Yndislegt! Gangi þér rosalega vel í prófunum og vertu bara sátt við þann árangur sem þú nærð. Ég hef alltaf á bak við eyrun það sem ég heyrði einu sinni og fannst algjör snilld. "Allt umfram 5 er óþarfa vinna". Ekki það að maður vilji ekki hærra þá bara skiptir það engu máli.
    Gnagi þér vel.
    Áskorun

    By Anonymous Nafnlaus, at 11. maí 2005 kl. 07:05  

Skrifa ummæli

<< Home