léttfimmtug

mánudagur, janúar 23, 2006

Dagur 28

Allt gott að frétta af mér. Er í góðu fráhaldi og sátt við menn og FellaMýs. Hef þurft að aðlaga mig að sveigjanlegu mataræði þar sem eldhúsið hjá mér er á haus (verið að flísaleggja) og ég get ekki athafnað mig eins og ég vil.

Ég er ekki að fara á vigtina og hef ekki hugmynd um hvað ég er þung, finn bara að ég er á góðu róli og hægt og rólega stækka fötin og öll einkenni ofáts og þeirra skemmda sem því tilheyra eru á undanhaldi.

Ég fer alltaf bloggrúnt nánanst á hverjum degi og gleðst með sigrum ykkar allra.

7 Comments:

  • Gott að allt gengur vel :o) Knús frá DK!!

    By Blogger Hildur, at 24. janúar 2006 kl. 12:59  

  • Flott að þér gengur vel, ég vissi að þér tækist það. Kveðja Elín.

    By Anonymous Nafnlaus, at 24. janúar 2006 kl. 17:19  

  • Yndislegt að heyra hvað þér gengur vel. Ég datt í svolítið sukk um og eftir helgina, en það er allt að komast í lag aftur. Og hey, það er viðtal við mig í Séð og Heyrt ef þig langar að lesa ;)

    By Blogger Lilja, at 25. janúar 2006 kl. 14:44  

  • Glæsilegt krútta, þú stendur þig vel!

    By Anonymous Nafnlaus, at 25. janúar 2006 kl. 21:09  

  • gott að þér líður vel og fötin rýmkast;) gangi þér vel!!!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 29. janúar 2006 kl. 00:44  

  • Vonandi gengur allt saman vel hjá þér, væri gaman að heyra frá þér! :)

    By Anonymous Nafnlaus, at 21. febrúar 2006 kl. 23:07  

  • Takk dúlla fyrir innlitið á síðuna mína. Ég kem alltaf hér inn og vonast til að þú sért búin að skrifa eitthvað nýtt því það er svo gaman að lesa póstana þína. Gangi þér áfram vel í fráhaldinu :) Knús frá Árósum

    By Blogger Hildur, at 13. mars 2006 kl. 15:27  

Skrifa ummæli

<< Home